DOGCOM 560 mAh 150C 14.8 V 4S LiPo Battery
Öflug og létt 4S LiPo rafhlaða hönnuð fyrir FPV dróna þar sem hámarksafl, hröð svörun og stöðug frammistaða skipta mestu máli. Rafhlaðan hentar sérstaklega vel fyrir minni freestyle- og racing-uppsetningar sem krefjast mikils straums án þess að bæta óþarfa þyngd á flygildið.
DOGCOM rafhlöður eru þekktar fyrir lágt innra viðnám og jafna spennudreifingu, sem skilar betri stjórn, skarpari throttle-svörun og stöðugu afli út allt flugið, jafnvel undir miklu álagi.
Helstu eiginleikar
-
150C samfelldur losunarhraði fyrir stöðugt og öflugt afl
-
Allt að 300C burst fyrir snöggar afltoppa
-
Létt og þétt hönnun sem bætir meðhöndlun og flugtíma
-
Stöðug spenna undir álagi
-
Hentar vel fyrir FPV freestyle og racing dróna
Tæknilýsing
Hentar fyrir
-
FPV racing dróna
-
Léttar 4S freestyle uppsetningar
-
Flygildi sem nota XT30 tengi
-
Notendur sem vilja hámarksafl í kompakt stærð
Athugið
LiPo rafhlöður krefjast réttrar meðhöndlunar. Notið aðeins LiPo-hæft hleðslutæki og fylgist alltaf með við hleðslu. Forðist ofhleðslu, ofafhleðslu og geymið rafhlöðuna á öruggum stað þegar hún er ekki í notkun.
Viltu aðra stærð af lipo? Sendu okkur email á dornefly@dronefly og við bætum því við næstu pöntun.